Skip to main content

Heilsugæsla

Allar heilsugæslustöðvar landsins nota Sögu

Undanfarin ár hefur verið unnið að rafrænum sendingum lyfseðla sem allar heilsugæslustöðvar eru farnar að nota. Einnig fara bólusetningar ,sem skráðar eru í Sögu - sjúkraskrá, beint í bólusetningagrunn landlæknis og hægt er að skrá gögn beint í Slysaskrá Íslands. Þessa dagana eru vefbókanir og SMS áminningar að detta inn.

Í þróun er nýtt skráningarviðmót fyrir ung- og smábarnavernd sem stefnt er á að ljúka á næstu vikum.  Þetta viðmót mun taka við af gömlu eyðublöðunum, þó þau verði áfram til staðar. Nýtt viðmót fyrir skráningu mæðraverndar, heimahjúkrunar, skólaheilsugæslu, móttöku og klínísk skráning lækna er einnig í mótun. Innan tíðar geta heilsugæslustöðvar sent bréf (lækna- og hjúkrunarbréf), beiðnir og svör rafrænt milli stofnana.

Ef þú vilt fá nánari upplýsingar hikaðu þá ekki við að hafa samband við þjónustudeildina í síma 545-3333 eða á thjonusta@emr.is 

 

 

 

 

Forsíða
  • > Heilsugæslur