Forsíðu sjúklings er ætlað að veita heilbrigðisstarfsfólki yfirsýn yfir ástand sjúklings og stöðu meðferða hans. Á forsíðunni verða birtar lykilupplýsingar úr sjúkraskrá sjúklings á nokkuð samþjöppuðu formi en notanda verður gefinn kostur á að skoða tiltekin atriði nánar. Ýmist með því að fá upp ýtarlegra yfirlit fyrir tiltekið atriði eða með því að opna þá einingu Sögu sem hefur umsjón með skráningu gagnanna. Forsíðan mun ennfremur vera nokkurs konar inngangspunktur inn í ný skráningarviðmót Sögu. Notendur geta því brugðist strax við þeim upplýsingum sem birtar eru t.d. með því að breyta þeim eða skrá nýjar.
Forsíða sjúklings mun leyfa notendum að skoða sjúkragögn sjúklings út frá fjórum mismunandi sjónarhornum:
Meðferð: Hægt verður að skoða gögn út frá tiltekinni meðferð, þannig verða sýnd öll sjúkragögn sem tilheyra einni og sömu meðferðinni allt frá því þegar sjúklingur kemur inn á sjúkrahúsið þar til að hann hefur útskrifast. Þegar þetta sjónarhorn er valið munu gögn sem skráð eru á bráðamóttöku, legudeildum og göngudeildum, vegna sama heilbrigðisvanda, fylgjast að.
Meðferðarlota: Þetta sjónarhorn sýnir notendum sjúkragögn sjúklings flokkuð niður á meðferðarlotu. Meðferðarlota er tímabil í innlögn sjúklings þar sem sjúklingur er skráður á ákveðinn skipulagskjarna (sérgrein). Þegar sjúklingur er fluttur á milli skipulagskjarna lýkur meðferðarlotunni sem sjúklingur var skráður á og ný hefst.
Tegund þjónustu: Þegar þetta sjónarhorn er valið flokkast gögn á forsíðu í eftirfarandi flokka: Bráðaþjónusta, innlagnir (legudeildir, dagdeildir) og göngudeildarþjónusta.
Óflokkað: Öll sjúkragögn sjúklings eru sýnd. Þannig verða t.a.m. allar greiningar sýndar í tímaröð og allar aðgerðir í tímaröð.