Mælingar er eining í Sögu sem er notuð til að skrá ýmsar tölulegar upplýsingar um sjúklinga sem síðan eru birtar á textaformi og á myndrænan hátt.
Auðvelt er að skrá mælingar fyrir marga sjúklinga í einu og fá yfirsýn yfir mælingar, bæði myndrænt og sem texta. Hægt er að sjá lífsmörk fyrir alla sjúklinga á deild, eða fyrir valinn sjúkling á textaformi. Þegar allir sjúklingar eru sýnilegir sjást bara nýjustu lífsmörk hvers sjúklings auk dagsetningar og tíma skráningar en ef einn sjúklingur er valinn sést lífsmarkasaga þess sjúklings. Lífsmörk sem eru utan vikmarka eru merkt á áberandi hátt. Einnig er hægt að skoða lífsmörkin á línuriti og þá er hægt að velja hvaða lífsmörk eru sýnd.

Í einingunni er einnig hægt að skrá mælingar fyrir eftirfarandi þætti:
Hægt er að skoða allar mælingar í töflu og á línuriti.
Vökvajafnvægi
Hægt er að skrá inntöku og útskilnað sjúklings svo auðvelt sé að fylgjast með vökvajafnvægi. Velja má mismunandi tímabil vökvajafnvægisuppgjörs. Einnig má skoða uppgjörstímabil í töflu og á línuriti þar sem uppgjörstímabilið er frá 15 mín. upp í 24 klst.
