Saga fyrir öldrunarstofnanir
Kerfið hentar hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra sem vilja tryggja samfellu í hjúkrunar- og læknisþjónustu með kerfisbundinni heilsufarsskráningu. Flestar öldrunarstofnanir setja sér gæðamarkmið sem öll hjúkrun er unnin eftir. Margar nýjungar má finna í útgáfu Sögu 3.1.32 sem stuðla að góðri yfirsýn yfir framvindu meðferðar hvers og eins. Þar má helst nefna nýtt viðmót fyrir upplýsingaskrá hjúkrunar, meðferðarskráningu, íhlutaskráningu og lífsmörk og mælingar. Öll kóðunarkerfi sem heilbrigðisstarfsmenn eiga að nota skv. tilmælum landlæknis eru í kerfinu þ.e. ICD-10, NCSP, NANDA og NIC auk þess eru inni PHYSIO kóðar fyrir meðferðir sjúkraþjálfara. Í Sögu er einnig nýtt legudeildarkerfi sem heldur utan um leguupplýsingar.
Þegar Landlæknisembættið óskar eftir upplýsingum fyrir heilbrigðistölfræði eða vegna eftirlits liggja þær upplýsingar fyrir. Kerfið sendir gögn beint í bólusetningargrunninn og Slysaskrá Íslands en einfalt er að keyra reglulega skýrslur yfir lágmarksskráningu samskipta, vistunarupplýsingar og skráningar- og tilkynningaskylda sjúkdóma.
Meðal nýjunga sem eru í smíðum og munu nýtast öldrunarstofnunum eru fjölskyldutré og tengslakort
Hjúkrunarheimilið Sóltún notar Sögu