Hér er hægt að finna handbók um íhlutaskráningu.
Íhlutaskráning er ný eining í Sögu sem á að nota til að halda utan um þá íhluti sem settir hafa verið upp hjá einstaklingum. Íhlutir eru ýmis tæki og tól sem yfirleitt eru sett í einstaklinga og eru þar um lengri eða skemmri tíma. Dæmi um íhluti eru t.d. ýmsar nálar, lyfjabrunnar, magasondur og þvagleggir. Tímasetningar, staðsetningar og tegundir / gerðir íhluta eru skráðar í þessa nýju einingu og sýndar á grafískan hátt á yfirlitsmynd. Aðalhlutverk íhlutaskráningar er að fá gott yfirlit yfir þá íhluti sem einstaklingur hefur fengið og er með, hvar þeir voru staðsettir, hvenær þeim var sinnt og hver sá um meðhöndlun hverju sinni.
Íhlutir eru settir fram á grafískan hátt sem láréttar línur yfir valið tímabil.

Við hverja línu er skráð tegund íhlutar og hvenær síðasta breyting var gerð. Einnig eru sérstaklega merkt á línuna hvenær íhluturinn var fyrst settur í (grænn punktur), hvenær var skipt um hann (blár punktur) og hvenær hann var fjarlægður (rauður punktur).
Fyrir nýskráningu er notandi leiddur áfram skref fyrir skref við að skrá allar nauðsynlegar upplýsingar. Skráningarferlið er ekki eins fyrir alla íhluti þar sem mismunandi upplýsingar þarf að skrá fyrir hvern íhlut fyrir sig. Aðeins verður hægt að velja úr fyrirfram ákvörðuðum listum en ekki skrá inn frjálsan texta. Það tekur 3-7 skref að skrá hvern íhlut, háð því tegund íhlutar.Vinstra megin í skráningarglugganum birtist það sem búið er að velja. Græni punkturinn segir til um hvar í skráningarferlinu notandinn er staddur.