Dagbók sjúklings verður hluti af meðferðarskráningu sjúklings í Sögu og verður notuð til að sýna allar tímabókanir / atburði sjúklinga á heilbrigðisstofnun. Þegar sjúklingur er bókaður í tíma í afgreiðslukerfi Sögu eða öðrum kerfum spítalans, og tengimöguleiki er til staðar, birtast þessar bókanir í dagbók sjúklings. Meðferðaraðili getur einnig skráð aðra atburði, hvort heldur það er bókun til meðferðaraðila eða að ósk sjúklings. Sem dæmi má nefna bókun í viðtal eða hvenær sjúklingur verður sóttur af ættingja. Hægt verður að prenta út dagbók sjúklings og velja hversu marga daga skal prenta út í einu.