Skip to main content

Dagplan deildar

Dagplan deildar verður hluti af meðferðarskráningu sjúklings í Sögu og verður notað af meðferðaraðilum deilda til að birta og skrá dagplan allra sjúklinga á deild og fyrir valda sjúklinga. Dagplan er yfirlit þar sem koma fram upplýsingar um sjúklinga deildarinnar, hvar þeir liggja, helstu þætti meðferðar, ástand og tímabókanir dagsins. Upplýsingar sem óskað er eftir að sjáist á dagplaninu eru valdar úr fyrirfram ákveðnum lista. Á dagplaninu verður einnig reitur þar sem heilbrigðisstarfsmaður getur skráð inn upplýsingar á textaformi. Hægt er að skoða dagplan deildar á skjámynd og prenta út allt dagplanið eða valda hluta þess. 

Hlutverk dagplans er að safna saman öllum þeim upplýsingum úr Sögu og öðrum kerfum, sem heilbrigðisstarfsmaður þarf á að halda til að geta sinnt daglegum störfum við umönnun sjúklings á deild. Ýmsar leguupplýsingar um sjúklinga þurfa að vera aðgengilegar í dagplani, t.d. stofunúmer og rúmstæði, innlagnardagur og fyrirhuguð útskrift sjúklings, innlagnarástæða, sjúkdómsgreining, aðgerðarheiti og ábyrgur hjúkrunarfræðingur og læknir. Aðrar upplýsingar þurfa líka að vera aðgengilegar eins og upplýsingar um íhluti sjúklinga og upplýsingar um lyfjagjafir úr TMM. Hver deild er með staðlað viðmót en hver starfsmaður getur búið til eitt eða fleira viðmót fyrir sig, með þeim tegundum upplýsinga sem honum hentar. 

 

 

Forsíða