Skipulag og stjórnun: Í Sögu eru settar upp áætlanir um þjónustu, símatíma og móttöku. Viðskiptavinir geta pantað tíma eða bókað á vefnum og fengið SMS áminningu. Hægt er að fá yfirlit yfir komur og ónýtta tíma (skróp og afbókanir). Kerfið sækir uppfærða þjóðskrá daglega.
Fjármál: Reikningagerð, uppgjör og yfirlit. Rafræn yfirlit sérfræðireikninga og efnisgjalda til Sjúkratrygginga Íslands.
Sjúkraskrá - klínísk skráning: Senda lyfseðla rafrænt í apótek, skrifa læknabréf, rannsóknarbeiðnir og niðurstöður rannsókna. Í kerfinu eru ýmis sérhæfð eyðublöð fyrir t.d. augn-, barna-, bæklunar-, húðsjúkdóma- og kvensjúkdómalækna, auk fæðingartilkynninga, sykursýkisskrár, aðgerðalýsingar og svæfingaskrár sem og öll nauðsynleg eyðublöð og vottorð Tryggingastofnunar, Sjúkratrygginga Íslands og Vinnumálastofnunar. Einnig er hægt að setja inn viðhengi óháð tegund eða tengja beint við jaðartæki, eins og prentara.
Þegar Landlæknisembættið óskar eftir upplýsingum fyrir heilbrigðistölfræði eða vegna eftirlits liggja þær upplýsingar fyrir. Kerfið sendir gögn beint í bólusetningargrunninn og Slysaskrá Íslands en einfalt er að keyra reglulega skýrslur yfir lágmarksskráningu samskipta og skráningarskylda og tilkynningarskylda sjúkdóma.
Klínísk skráning lækna er í þróun með áherslu á hraðskráningu og vonandi verður innan tíðar hægt að senda læknabréf, beiðnir og svör rafrænt milli stofnana. Núþegar er sjúkrahús Vestmannaeyja og Íslensk myndgreining farin að senda beiðnir og svör sín á milli.
Það skal tekið fram að Saga hentar einnig fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga í hjúkrun.
Viðskiptavinir: