Skip to main content

Um EMR

Um EMR Heilbrigðislausnir

EMR Heilbrigðislausnir er leiðandi fyrirtæki í hugbúnaðarlausnum  fyrir heilbrigðisgeirann á Íslandi. Lausnir fyrirtækisins eru notaðar daglega af nokkur þúsund heilbrigðisstarfsmönnum á öllum helstu heilbrigðisstofnunum landsins auk sérfræðilækna, starfsfólki apóteka og fjölmörgum öðrum aðilum. Fyrirtækið þróar og selur meðal annars:

Sögu - sjúkraskrá
Heklu - heilbrigðisnet
Rafræna lyfseðlagátt
Medicor - afgreiðslukerfi fyrir apótek
Pharmacy - lyfjaafgreiðslukerfi fyrir spítala

EMR byggir á gömlum grunni sem nær aftur til 1993 þegar þróun Sögu sjúkraskrár hófst. Fyrirtækið hefur yfir að ráða öflugum hópi starfsmanna með heilbrigðis- og tæknimenntun og margra ára reynslu af þróun lausna fyrir heilbrigðisstofnanir.

EMR Heilbrigðislausnir er dótturfyrirtæki TM Software og hluti af Nýherjasamstæðunni. Framkvæmdastjóri EMR er Hákon Sigurhansson.

Forsíða
  • > Um EMR