Skip to main content

Fréttir

03.01.12

EMR heilbrigðislausnir eru TM Software - heilbrigðislausnir

Breytingar á skipulagi EMR heilbrigðislausna og TM Software

Nánar >>


06.01.11

Viðhaldsvinna á Hekluneti aðfararnótt laugardagsins 8.janúar

Fyrirhuguð er viðhaldsvinna við Heklunetið næstkomandi laugardagsnótt. Stefnt er á að hefja vinnuna kl. 01:15 og henni verði lokið kl. 03.

Nánar >>


23.03.10

EMR er flutt í Borgartún 37

EMR hefur flutt alla sína starfsemi úr Urðarhvarfi 6 í Nýherjahúsið í Borgartúni 37.

Nánar >>


18.12.09

EMR styrkir Krabbameinsfélag Íslands

Í ár hafa systurfyrirtækin TM Software, EMR og Skyggnir stutt við bakið á starfsemi Krabbameinsfélags Íslands og veitt félaginu veglega jólagjöf í formi fjárstyrks að andvirði þeirrar fjárhæðar sem hefur hingað til verið varið í jólagjafir og jólakort til viðskiptavina.

Nánar >>


07.12.09

EMR leitar að vörustjóra fyrir Sögu og prófanastjóra

Í boði er krefjandi starf hjá traustu fyrirtæki.

Nánar >>


16.07.09

Sjálfvirk vöktun fyrir sóttvarnalækni

EMR Heilbrigðislausnir þróaði nýlega í samstarfi við sóttvarnarlækni lausn til að fylgjast með mögulegri útbreiðslu svínaflensu á Íslandi. Fylgst er sjálfvirkt með greiningum og úrlausnum sem geta tengst svínaflensu og skráðar eru í Sögu sjúkraskrá á öllum heilsugæslustöðvum og spítölum landsins.

Nánar >>


10.06.09

EMR gengur á Hvannadalshnjúk

Tíu manna hópur frá EMR Heilbrigðislausnum tók sig til í byrjun sumars og gekk á Hvannadalshnjúk. Gengin var svokölluð Sandfellsleið í blíðskaparveðri og var logn alla leiðina. Eftir rúma sjö klukkustunda göngu var hópurinn kominn á hæsta tind Íslands 2110 metrar . Útsýni á toppnum var frábært og léku veðurguðirnir við starfsfólk EMR. Gangan tók í heild sinni rúmar 11 klukkustundir og gekk í alla staði mjög vel enda hafði hópurinn undirbúið sig vel meðal annars með göngu á Eyjafjallajökul um miðjan maí.

Nánar >>


31.03.09

Fjórði hver lyfseðill sendur rafrænt með Heklu

Innleiðing rafrænna lyfseðla á landsvísu hófst í september 2007 og lauk fyrsta áfanga innleiðingarinnar í janúar 2009 þegar Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins (HH) hóf að senda lyfseðla rafrænt. Í desember 2008 voru 27.335 lyfseðlar sendir rafrænt en í febrúar 2009 voru þeir orðnir 41.795, sem er liðlega 50% aukning. Samkvæmt þessu er fjórði hver lyfseðill sem gefinn er út í dag rafrænn.

Nánar >>


01.03.09

Við höfum fengið nýtt nafn

TM Software - heilbrigðislausnir hafa skipt um nafn. Nýja nafnið er EMR Heilbrigðislausnir. Samhliða þessu höfum við tekið upp nýtt merki, nýja heimasíðu www.emr.is , breytt tölvupóstföngum yfir í @emr.is og tekið upp ný símanúmer fyrir skiptiborð 545 3300 og fyrir þjónustuver 545 3333.

Nánar >>


22.12.08

Jólagjöf TM Software, EMR og Skyggnis til Krabbameinsfélags Íslands

Systurfyrirtækin TM Software, EMR og Skyggnir hafa ákveðið að styðja við bakið á starfsemi Krabbameinsfélags Íslands og veita félaginu veglega jólagjöf í formi fjárstyrks að andvirði þeirrar fjárhæðar sem hefur hingað til verið varið í jólagjafir og jólakort til viðskiptavina.

Nánar >>


02.04.08

Framkvæmdastjóraskipti hjá TM Software

Hákon Sigurhansson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá TM Software – heilbrigðislausnum af Hallgrími Jónssyni sem látið hefur af störfum.

Nánar >>


31.03.08

Hluti af heilbrigðissviði TM Software seldur

Fyrr á árinu var gengið frá sölu á hluta af heilbrigðissviði TM Software. Hlutinn sem seldur var eru hugbúnaðarlausnir fyrir lyfjaumsýslu á sjúkrahúsum ásamt Theriak nafninu. Kaupendur voru Bru II Venture Capital Fund S.C.A. SICAR annarsvegar og eigendur CIS-Healthcare frá Bretlandi hinsvegar.

Nánar >>


13.03.08

Samkeppniseftirlitið samþykkir samruna Nýherja hf. og TM Software hf.

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Nýherja hf. og TM Software hf. Gengið var endanlega frá samningi um kaup Nýherja á öllu hlutafé í TM Software 25. janúar sl. og voru þau háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Markmiðið með kaupunum er að styrkja stöðu Nýherja samstæðunnar í rekstrarþjónustu og hýsingu og þróun sérhæfðra hugbúnaðarlausna fyrir fyrirtæki. TM Software er móðurfélag Skyggnis, Origo, Vigor, eMR og IPT.

Nánar >>


27.12.07

TM Software flutt að Urðarhvarfi 6

TM Software flutt að Urðarhvarfi 6

Nánar >>


12.10.07

Nýherji hf. kaupir 77% hlut í TM Software hf.

Nýherji hf. hefur samið um kaup á 77% af hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækinu TM Software hf. af Straumi hf., FL Group hf. og Tryggingamiðstöðinni hf. Straumur hf. annaðist milligöngu um kaupin og eru þau háð niðurstöðu áreiðanleikakönnunar sem og samþykki samkeppnisyfirvalda.

Nánar >>


Forsíða