Árið 2011 varð EMR Heilbrigðislausnir aftur hluti af TM Software sem er hluti af Nýherjasamstæðunni. Þessar breytingar voru hluti af endurskipulagningu innan Nýherja, en eftir þær breytingar eru félögin innan samstæðunnar þrjú, Nýherji, Applicon og TM Software.
Engar breytingar urðu á starfsfólki, en netföng starfsmanna hafa breyst úr @emr.is í @tmsoftware.is. Símanúmerið okkar er það sama, fyrir skiptiborð 545 3300 og fyrir þjónustuver 545 3333. Heimasíðan okkar verður áfram www.emr.is enn um sinn og þjónustubeiðnir skal áfram senda á thjonusta@emr.is.